var að bæta við myndum á www.myspace.com/ellasiggag ég er algjörlega andlaus þessa dagana, geri lítið annað en að zóna út í misheppnuðum tilraunum til lærdóms, ég held það hefði verið nær að skella mér á rító... segi svona, annars gengur það dæmi rosalega vel, stráksi búinn að fara í þrjú próf á önninni, fékk níu í náttúrufræði, 7,9 í landafræði og 9,5 í ensku, ég er ekkert smá stolt af prinsinum mínum
... ótrúlegt en satt, þá er kominn nýr herramaður í lífið mitt ... verið að skoða stöðuna ... ég er mínus tyggjó síðan á miðvikudaginn, þetta er allt að koma, ég er 70kg og er að fá smá kast yfir því, fæ ekki að minnka matinn en á að hreyfa mig meira, minn lasni haus er að stríða mér í þessum málum, þannig að ég er í heimalagaðri hugrænni atferlismeðferð, fullvitandi að bilað lagar ekki bilað ... er með margar sponsíur, það er blússandi bati í gangi og rosa gaman að fá að verða vitni að kraftaverkum um allan bæ, allt land even, þar sem ég hef orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að hjálpa fólki á fleiri stöðum en í rvíkinni ... ætla að fara að sofa núna, vakna snemma, vinna 8-4 á morgun, svo ætlar vestfjarðavalkyrjan mín að heimsækja mig og aldrei að vita nema nýji gíslinn láti sjá sig, hann kom með flakkarann sinn í heimsókn áðan, skildi hann eftir svo JJ gæti horft á morgun, ég bauð honum köttinn í pant en hann afþakkaði það ... eníhú, bið ykkur vel að lifa unz síðar ...